hey hós wanna ride ?
borðið hollt!! og gott ;)
26.10.2007 10:37:45 / ernaplaygirl

Komin ný síða

Jæja gott fólk. Ég og Teddi erum með núja síðu www.hraunhvammur8.bloggar.is

En ég er ekki hætt með þessa síðu, hinar stelpurnar verða að fara standa sig í að blogga meira ekki bara ég. :D

En á hinni síðunni þá vona ég að ég get sett myndir . því að einhverjum ástæðum þá er það ekki að virka hérna.

Ekki meira núna, endilega kíkja á hina síðuna


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 20:43:20 / ernaplaygirl

Get ekki

Því miður þá get ég ekki sett inn myndir :(

Ég ætlaði að setja inn myndir frá afmælinu mínu og spáni en það er ekki að virka.

Það er hægt að skoða myndirnar á www.myspace.com/ernahotty og farið í pic.

En ætla að fara kúra hjá tedda mínum

 

Love 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 10:00:50 / ernaplaygirl

Nýjustu fréttir

Góðan daginn :)

Ég er með smá tilkynningu og það er að við vorum að fá nýjan fjölskyldumeðlim :D

Hún heitir Freyja og hreinræltuð schafer tík og er 3gja og hálfs árs gömul. Með ættbók frá HRFÍ. Við fengum hana gefins því konan sem átti hana er að flytja til útlanda og gat ekki haft hana með sér. Það sem fylgir henni er 6 fermetra sérsmíðað búr. ( Gott að hafa úti í garði ) Venjulegt hundabúr til að hafa inni.þ Matadallar. Tveir 15 kílóa pokar af mat og nokkrir taumar og ólar og svo fullt af nammi og ekkað af dóti.

Cesar er mjög ánægður yfir því að það er komin skvísa á heimilið og hann eltir hana eins og skugginn á henni. Það er ekki búið að vera neitt vesen. hún er mjög góð og Cesar elskar hana, er alltaf að sleikja hana og þrífa á henni eryun og svona.

En ekki meira blaður um hundana ..  :)

Love - Erna


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 16:36:41 / ernaplaygirl

Komin úr sólinni og 35 stiga hita

Halló halló

þá er maður komin heim og vá hvað það var gaman úti.. fyrir utan það að það var soldið mikið skýjað og við fengum einn og hálfan dag í rigningu :S  EN þegar það var skýjað þá versluðum við af okkur rassgatið :D :D :D

En Teddi er þokkalega brúnn því hann er miklu fljótari en ég að taka lit .. Ég er samt líka með smá lig :)

Cesar var alveg himinlifandi þegar við náðum í hann af hundahótelinu og hann kvartaði og kvartaði í bílnum.. hætti ekki að væla. :)

En maður er byrjaður að vinna á fullu og bara gaman svo erum við byrjuð að fara út að hjóla með cesar og það er gegt gaman

Ekki meira núna :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 13:09:28 / ernaplaygirl

Hvað á maður að segja

Hef lítið sem ekkert að segja þá eru bara nokkrir punktar núna.

  1.Fórum á ljósanótt,gaman gaman, vorum 1 og hálfan tíma heim út af umferð:klikk:

  2.Hittum Einuru systir,fékk GEGT flott veski og sjúklega gott ilmvatn í afmælisgjöf:D

  3.Það þarf að þrífa heima 8|

  4.Ég á bleikan síma og Teddi á líkan nýjan síma (en ekki bleikann)

  5.Fékk afmælispakka frá Tedda,Bleikt og silfurlitað úr.Virkilega flott:haha:

  6.Það eru 13 dagar þangað til að við förum út í sólina:lol::haha:

 

Ekkert meira eins og er.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 10:35:24 / ernaplaygirl

Mikið að gerast

Jahá.. þá verður svaka afmælisparty núna á laugardaginn 25,ágúst. og svo bara þynnka daginn eftir.

Ég er búin að vera gera svo rosalega mikið núna í þessari viku, Vinna á milljón og hjálpa ásdísi snúll og einari að flytja, virkilega kósí íbúð. Svo vinna og fara í litun og augnhár hjá ásdísi svo í kvöld er ég að VINNA og vinna á hansen.. það er happy hour í kvöld allir að koma og fá sér bjór :D

Á morgunn er ég svo að fara baka muffins fyrir fjölskylduboðið sem verður hjá mömmu og pabba ;) Og það verður HOPPUKASTALI í boði fyrir börnin :haha::haha:

Brynjar bróðir hans Tedda og kata kærastan hans eru að flytja í bæinn ;) koma á fimmtudaginn í næstu viku :D bara gaman.

Svo á laugardaginn 1.september þá er ljósanótt í kef og maður fer þangað og partý hjá ásdísi :) og einari 8)

En ætla að halda áfram að vinna. :D :o


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 11:16:47 / joski

iðnskólinn!!

og já.. ég gleymdi að segja að ég komst inní iðnskólann í hfj þannig að ég er að fara í hárgreiðsluna :D þetta verður voða gaman og ég auglýsi eftir tilraunadýrum hahaha..

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 09:51:01 / joski

STELPUPARTY!!

stelpur ég þráii stelpu party!!!!!!! ég meina það! það er alltof langt síðan ég ég hitt svo margar vinkonur mínar að ég þrái að halda eikkað smá eitt kvöldið til að hitta ykkur !!

hvað segið þið við því stelpur!!

svo er náttla ammælið hennar ernu! það verður crazy in the ass house og sheeps!! hahahaha

ja einmitt! þið skiljið mig!!

jæja skutlur hittumst sem fyrst!

bæjó ;) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 09:25:07 / ernaplaygirl

Akkurat 4 vikur í frí

Góðan daginn allir saman.

Ég er stödd í vinnunni eins og er og það er virkilega rólegt að gera.

Núna fer 20tugs afmælið mitt að nálgast og það verður virkilega djammað,

En svo fékk ég afmælisgjöf um daginn frá allri fjölskyldunni minni og það var ekkert lítil gjöf, ég fékk ferð til spánar í 10 daga :D og næstum því 100 þúsund kr í gjaldeyrir :haha:

Teddi love kemur auðvitað með og erum við að deyja úr spenningi að komast í frí því það er mikið búið að ganga á núna hjá okkur upp á síðkastið. Það eru akkurat 4 vikur þangað til að við förum í fríið því 14. september er síðasti vinnudagurinn þangað til að við förum út.

Cesar er kominn með annað heimili hjá konu sem heitir Íris og hún býr í sveit rétt fyrir utan hvalfjörðagöngin og það tekur bara klukkutíma að keyra þangað. En Cesar fór til hennar á föstudaginn síðasta. Og það gengur víst svona rosalega vel með hann. :lol:

 

Ekki meira í dag

Lover


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 21:43:47 / ernaplaygirl

Smá breyting

Afmælið mitt verður heima hjá mér þann 25, ágúst,
Ég og Teddi erum nebbla að fara til SPÁNAR og ætla ekki að halda upp á afmælið á hansen.
 
En er að fara út að kaupa ís.
 
 
Love 

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 13:16:47 / ernaplaygirl

20tugs afmæli að nálgast.

JAHÁ þá fer bara að koma að því að ég verði 20 ára.

Ég er búin að vera pæla mikið hvort að ég eigi að halda það heima eða bara á ahansen ? En ég heldð að ég haldi það frekar á A hansen þá þarf ég að vakan daginn eftir og byrja á því að þrífa eftir ykkur subburnar mínar :D:P

Þannig að afmælið verður þann 25, ágúst ( ég veit að það er pínu langt í það en ekkert svo) :haha:

ætli ég láti það ekki byrja um svona 21:30 það er bara fínn tími. kanksi maður verði kominn ekkað fyrir það og byrji að drekka en það er ekki ákveðið.

Við verðum með litla salinn privat  og ég ætla að vera með 10 LÍTRA bollu á staðnum.

Allir að mæta með góða skapið :)

 

Love :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 17:07:10 / bryndisbeauty

nei hvað er að gerast ;) hehe bara blogg

þar sem ég sit bara heima í leti (sumarfrí love it! ;) ) þá ætla ég aðeins að skrifa nokkur orð ;D en ásdís og einar eru útí Sloveniju núna og koma ekki aftur fyrr en eftir marga marga daga :/ en þau eiga eftir að skemmta sér vel efast ekki um það, heyrru já Ragna og Kalli eru þanna líka þannig þau geta fundið sér eitthvað að gera... shit hva marhh væri nú samt til í að vera að fara á Papa chico úfff eins gott að þau skemmti sér bara fyrir mig í leiðinni ;) hehe

En ammælið hans Einar var um daginn, það var bara mjög gaman samt leiðinlegt hvað Erna og Teddi þurftu að fara snemma heim. Erna greyið að drepast í hausnum :/ það er ekki sniðugt og skohh ekki í boði næst þegar það er djamm ;) hmm Erna hvað segiru er það nokkuð.... ? En það komu flest allir í búningum eða kannski ekki bókstaflega búningum en voru einhverjar persónur og ég held að allir séu sammála um að hárið hennar Rögnu átti kvöldið :D hahah snillingur... allavega fór ekki milli mála hvað hún var og fyrir þá sem voru ekki í ammæli þá var hún með toppinn beint upp í loft og þeir sem eru mjög klárir fatta strax að það er auðvitað hún Mary í something about Mary ;D það var bara snellld... Enda fékk ´hún mikla athygli út á það... alltaf gaman að þvi ;D  já þetta var bara stuð , hver á svo næsta afmæli...... ? 

Ég fór í ammæli til hennar Dagnýjar á laugardaginn þar var bara fámennt en góðmennt ;D hún eldaði fyrir okkur þennan geggjaða mat, shit hva mig langar í það núna en það voru kjúklingabringur með einhverju inní so var einhver sósa sem var með sveppum og hrísgrjónum og fleira ekkert smá gott ..... Við fórum svo í bæinn og hittum Önnu Björt sætu alltaf gaman að hitta hana, við ætluðum að fara á Nasa en chillum aðeins á röðinni sjæsinn skohh það var ekki alveg að gera sig að nenna að hanga í röðinni þannig við skelltum okkur bara á Hressó sem var bara mjög gaman :D það var samt kannski aðeins of heitt þannig ég komst að þeirri niðurstöðu að næst þegar ég fer á djammið þá ætla ég að vera búin að kaupa mér litla viftu hversu cool væri það hahaha ;) já svo fórum við bara heim um sona 5:30 þannig þetta var bara fínasta kvöld :D en sjæsin ég er bara búin að skrifa slatta marhh... hva er að gerast :P ég ætla að hætta núna og fara að koma mér á æfingu þýðir ekkert annað þó marhh sé í sumarfríi þá má nú ekki slappa af hmm ;) aight.....

ég er hætt...

Bryndís :D

Smá Grettir í lokin, snillingur ;D haha


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 13:05:03 / ernaplaygirl

Afmælisveisla núna um helgina

Einar á afmæli núna 14,júli og verður djamm á trix næstu helgi :)

Það er kvikmynda / stjörunþema og maður er alveg í vandræðum að reyna velja hver maður á að vera :$

Þær hugmyndir sem hafa komið upp er Legaly blond, Something about Mary, Desteny child, Dolly Parton, Paris Hilton, Britney Spears, :!:

En við höfum bara ekki hugmynd um hvað við viljum vera, ég held að Teddi baby ætlar að vera James Bond 8):D

Og held að Ásdís ætlar að vera Legaly blond.

Ef þið hafið einhverja uppástungu endilega commentið á það ;):haha:

 

Love


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.07.2007 14:14:44 / ernaplaygirl

Önnur vinnu vika að verða búin

Þá er maður komin frá Hornafirði og búin að vera vinna núna í heila vinnuviku.

Þetta var nú virkilega skrautleg humarhátíð 8)

Við fórum austur eftir vinnu á fimmtudagskvöldin .. á föstudaginn byrjaði svo humarhátíðinn sjálf en ekki fyrr en um seinnipartinn, ALLA VEGA það var byrjað að drekka á föstudagskveldinu og svo farið í mat hjá tengdó í lambalæri, ;) svo var haldið af stað niður að bryggju til að vera með í stemninugunni, og við vorum að dansa með Kalla á þakinu hahahahaha :haha:

Hann var sem sagt þarna að skemmta litlu krökkunum en hann var heví fyndinn :D

Á föstudagsnóttina / laugardags morgunninn fóru Hrefna og Davíð heim, því að fyrrverandi hans Davíðs réðst inn í tjaldið hjá þeim og skvetti bjór á þau og hún og einhverjar stelpur voru gegt leiðinlega við þau .. þannig að þau fóru.

Eins og þeir sem vita að sá sem er ekkað að níðast í systir minni hefði átt að hugsa sig tvisvar um. :evil:

Á laugardaginn var heví djamm og við hittum fyrrverandi hans Davíðs og það var aðeins danglað í hana :) En svo voru málin rædd og hún grenjaði bara. Það voru slagsmál út um allan bæ og sáum við einn mann ráðast á konuna sína því hún komst af því að hann var búinn að vera halda fram hjá sér. Þannig að hann ætlaði að berja hana. Svo var einn ryndill sem réðst á stelpu úr keflavík en hún var helvíti hörð og barði á móti.

Doddi náði sér í 2 stelpur og hann var aðal umræðuefnið á tjaldsvæðinu.(förum ekkert nánar út í það) hahaha  :lol:

Svo var keyrt heim í þynku.

*myndir koma bráðlega*

Love


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 12:51:55 / ernaplaygirl

HUMARHÁTÍÐ !!!

Halló halló

 

 Humarhátíðin byrjar á morgun og stendur yfir alla helgina.

Við ætlum að reyna fara seinnipartinn á morgunn.. seinnipart nee frekar svona um kvöldið.

Ég Agga og Hrefna erum allar að fara í klippingu og litun á morgun þær eiga að mæta hálf 4 en ég 4. Er að spá í að breyta eitthvað til en er bara ekki alveg viss hvernig. Teddi baby er líka að fara í klippingu og litunn en hann fer ekki fyrr en klukkan 6.. :) Þá er bara hornafjörður here we come :haha:8)

Það er spáð alveg ágætu veðri sem er bara best ekki langar manni að hafa grenjandi rigningu.

Alla vega þá eru mamma og pabbi úti í búlgaríu að hafa það rómó, fóru á mánudaginn og koma aftur á mánudaginn :) þá fæ ég nýtt sléttujárn ;)

Það gegnur bara vel í vinnunni er að standa mig bara með prýði hehe:) Það er alltaf bilað að gera hjá Tedda og Cesar er duglegur að vera einn heima ;)

En er að spá í að slútta þessu en það eru eftir að koma myndir frá humarhátíð :D

love ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18